SUMAR Á SELFOSSI

Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer nú fram í 29 skipti og er alltaf jafn gaman að undirbúa þessa frábæru hátíð. Þar sem hátíðin snýst um að skapa minningar með vinum og kunningjum og síðast en ekki síst að skapa minningar með NÁGRÖNNUM okkar sem er gríðarlega mikilvægt fyrir íþróttabæinn Selfoss.

Knattspyrnufélagið ÁRBORG hefur lagt gríðarlega vinnu ár hvert til þess að skapa þessar minningar sem bæjarbúar fá að njóta yfir þessa helgi og langar mig að þakka ykkur öllum kærlega fyrir að sýna okkur þann stuðning að mæta og njóta!
Góður félagsskapur og gleði hefur verið haft að leiðarljósi hjá þessum hópi í góðu blandi við árangur og reynum við að skila því inn í samfélagið ár hvert.

NÁNAR UM SUMAR Á SELFOSSI